Fara beint í efni

Sandblásturs­filmur fyrir einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki.

Ástarfuglar Prófaðu á gleri

Hvað kostar filman?

Hvernig filmu viltu?
Til viðbótar
Hvað er einfaldur útskurður?

Einfaldur útskurður er til dæmis húsnúmer, nafnamerkingar, mynstur með beinum línum svo eitthvað sé nefnt.

Hvað er flókinn útskurður?

Flókinn útskurður er þegar mynstur/útskurður inniheldur smáatriði sem eru erfiðari að skera út og líma upp, s.s. tré með greinum og laufblöðum, gras, ofl.

Verð með uppsetningu 25% afsláttur til og með 30. nóvember
Verð áður: kr. 21.400 kr. 16.050

Virðisaukaskattur er innifalinn í verði. Ofangreint verð miðast við staka filmu. Ef um fleiri en eina filmu er að ræða skaltu hafa samband og við gefum þér tilboð.

Hvers vegna Sbfilmur?

Okkar helsta markmið er að veita þægilega þjónustu og þess vegna fylgjum við þér frá byrjun til enda.

  1. Hönnun

    Við sendum þér hugmyndir og uppköst að útliti fyrir filmuna þína

  2. Útskurður

    Við skerum út og undirbúum filmuna fyrir uppsetningu

  3. Uppsetning

    Við komum, þrífum gluggann, og setjum upp filmuna

Svört útidyrahurð með bylgjulaga línum í filmu

Einstaklingar

Inngangur við Fellsmúla 8 með götuheiti og fuglum á grein í filmu

Fyrirtæki

Glerveggur með greinum og fuglum í filmu

Myndasafn

Okkar verk

Hér má sjá myndir af okkar fyrri verkum. Nýjar myndir bætast við reglulega.

Hvað segja viðskiptavinir okkar?

  • „Æðislegt fyrirtæki í alla staði! Sendum póst og fengum svör strax og það var komið og mælt glugga. Hlustuðu vel á allt það sem vildum og gerðu allt 100%. Fljót vinnubrögð og gæti ekki verið ánægðari með filmurnar. Og svo má auðvitað ekki gleyma sanngjarna verðinu!“
    María Ósk · 1. desember 2020
  • „Virkilega ánægð með þjónustuna hjá Sbfilmum, mæli heilshugar með fyrirtækinu.“
    Svava Guðrún · 20. nóvember 2020
  • „Við erum að tala um eldsnögga þjónustu, mjög faglega og allt perfecto. Til hamingju með faglega fyrirtækið ykkar.“
    Valdís Sylvía · 13. nóvember 2020
  • „Það er glöð kona sem skrifar þessi orð. Takk fyrir frábæra þjónustu og fallega hönnun á hugmyndum mínum. Fagleg og góð vinnubrögð er óhætt að segja þegar maður hugsar til ykkar. Hlakka til að eiga samskipti við ykkur snillinga aftur.“
    Kristín · 12. nóvember 2020
  • „Mjög góð samskipti og svarað fljótt, flott og snögg þjónusta er mjög sáttur“
    Jón Þór · 12. nóvember 2020
  • „Fljót og góð þjónusta. Vönduð vinna, mjög sátt“
    Berglind · 12. nóvember 2020
  • „Er ótrúlega ánægð með þjónustuna hjá Sbfilmum vinna hratt og vel mjög þæilegir snillingar og stóri forstofu glugginn minn orðin að listaverki“
    Valgerður · 5. nóvember 2020
  • „Ég er ekkert smá ánægð með filmurnar sem við vorum að fá frá Sbfilmum í útidyrahurð. Algjörir fagmenn! Þægilegt að tala við þá og mjög snöggir. Mæli klárlega með þessum snillingum!“
    Jóhanna Helga · 31. október 2020
  • „Hringdi í Sbfilmur á fimmtudegi og bað um að filma útidyrahurð. Voru mættir tveimur dögum síðar á laugardegi og unnu allt uppá 10. Mæli með þessu fyrirtæki.“
    Hannes · 31. október 2020
  • „Skjót og góð þjónusta og vönduð vinnubrögð. Frábært!“
    Hrönn · 30. október 2020
  • „Mæli 100% með. Flott fyrirtæki og skjót og góð þjónusta og mjög sanngjarnt verð. Takk kærlega fyrir mig.“
    Inga Birna · 22. október 2020

Samstarfsaðilar okkar

Gæði vöru okkar og verka skiptir máli og þess vegna gerum við miklar kröfur til þess efnis sem við notum.

Aslan

Selbstklebefolien GmbH

Sandblástursfilmurnar okkar koma frá Aslan í Þýskalandi. Þeir hafa sérhæft sig í framleiðslu á límfilmu síðan 1950, og vörurnar þeirra eru í hæsta gæðaflokki. „Made in Germany“.

Enso

Enso er okkar samstarfsaðili og heildsali hér á landi, og hafa alla tíð verið okkur til taks. Þeir þekkja filmur.

SunTek

Window Films

Sólarfilmurnar okkar koma frá SunTek í Bandaríkjunum, en þeir framleiða umhverfisvænar filmur sem hafa verið vottaðar að þær hindri 99% af útfjólubláum geislum.

Hafðu samband

Vantar þig frekari upplýsingar?